þetta er fyrir þig Hafrún
þessi helgi var bara snilld, get ekki sagt annað... Allt byrjaði
þegar Lena elska kom á fimmtudagskvöldið. hún vildi alveg taka
helgina vel hérna á Drangsnesi.

svo þegar líða tók á
föstudeginum þá komu fleira og fleira fólki á staðinn..Öll
fjölskyldan og systkyni pabba, Pála, Kata og co komu um
kvöldið og reyndar hitti ég þau lítið vegna þess að ég var í
gæslunni,, hversu svöl er ég?? en ég og Þórdís vorum að brillera
þar. Thelma og Anna voru með okkur til að reyna að vera jafn svalar
en það gekk ekki. ég held að jakkarnir hafa verið að gera sitt. á
laugardaginn byrjaði svo hátíðin. ég fór að vinna í kaffihúsinu og
svo horfðu allir á fótboltann. það var jafntefli, við vinnum þetta
næst

næst var söngvakeppnin og Harpa litla systir keppti og
Ellen, Árný og Torfi. Torfi tók Johnny Cash, hversu svalur er hann,
ég bara spyr. eftir keppnina byrjaði grillið og ég var nett stessuð
um að allt meðlætið myndi klárast. en það bjargaðist. og Ingólfur á
skilið miklar þakkir fyrir að bjarga mér á grillinu. haldið þið
ekki að hann hafi grillað um 500 pulsur!!!

næst var
kvöldskemmtun og Harpa söng þar líka en ekkert toppar Nonna og
Magnús.. ekki einu sinni Ari Jóns og co..

bara snilld hjá þeim.
og hver haldið þið að hafi allt í einu mætt hingað. Dóri og Danni,
bara allt í einu. þeir stoppuðu á Drangsnesi í einhverja 13 tíma.
og þú ert 8 tíma að keyra að keyra fram og til baka... Ballið með
Veðurguðunum var bara snilld. mæli sterklega með þeim. mikil
stemming með þeim.
á sunnudeginum byrjaði fólk að tínast burt en seinustu voru að fara
í dag. núna er staðurinn aftur orðinn rolegur eftir að um 1500
manns hafa verið hér. spáið í fjölgunina.um 80 manns búa
hérna og 1500 koma
ég vil þakka öllum fyrir frábæra helgi og myndir koma inn þegar
fartalvan mín kemst á netið.. ég ætla líka að safna saman myndum af
mínu fólki og setja inn. en kíkjið samt á www.123.is/odda og skoðið
myndirnar þar